Bjartsýni er plástur á svo margt. Ég hef komist að því að bjartsýni hjálpar þegar manni sýnist allt vera að fara til fjandans. Það vill svo til að ég hef þurft á mikilli bjartsýni að halda síðustu vikur.....augun mín hafa verið að bregðast mér en ég hef leikið Pollý Önnu leik á hverjum degi til að halda sönsum og það hefur skilað sér svo um munar. Ég er líka svo heppin að eiga góða vini og fjölskyldu sem eru óspör á hrós, huggun, hvatningu og stuðning. Í dag fékk ég stuðning úr annari átt sem gerir mig enn bjartsýnni..... námsráðgjafinn í HA og kennararnir mínir eru allir tilbúnir að aðstoða mig og sýndu mér mikinn skilning í þessari krísu minni. Það að hafa allan þennan stuðning og hvatningu er mér mikils virði......
Svo TAKK ALLIR :)
föstudagur, 23. febrúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Trú á eigin getu er sterkasta breytan í öllu sem við gerum - ef þú bara trúir á að þú getur þetta þá gengur þetta upp... svo er ekki verra ef allir hinir trúa því líka ;-) sem við að sjálfsögðu gerum..!!! Af því að þú getur ALLT :-)
knúús, Íris
Einu sinni las ég goða setningu:
Það skiptir ekki máli, hvort þú trúir þvi að þú getir það eða ekki, þú hefur alltaf rétt fyrir þér!
Tók soldin tíma að sinkast inn, en þetta er goður punktur og gott að muna eftir honum þegar vonleysið sækist að manni.
Þorkatla
Því fyrir utan að vera sæt, dugleg, fín og flott og ferlega skemmtileg.... þá ertu góð og heil stúlka sem stendur með sjálfri þér og getur allt sem þú vilt !
BYRJAÐU að trúa meira á þig... (svo ég noti þína speki :) )
ég trúi á þig
Skrifa ummæli