Ætli þetta orð sé nýyrði ? ætli fyrir svona 100 árum hafi fólk farið í bindindi ?
Ég hef alltaf verið að hugsa um bindindi ..... hætta þessu og hætta hinu....en auðvitað hætti ég aldrei neinu !! Þá ákvað ég að prufa dálítið annað.....plata sjálfan mig og .....byrja á einhverju :) ...og, hehe... ég held bara að það hafi tekist !! ég er byrjuð að hreyfa mig meira, borða hollara og anda að mér hreinu lofti alla sólahringinn :) þetta er ég búin að gera í rétt tæpar tvær vikur og gengur svona þrusu vel ! það fyndnasta við þetta allt, er að auðveldast er að byrja að anda að sér heina loftinu.
Ég skora á alla að hætta að hætta og fara frekar að byrja á einhverju.
föstudagur, 2. febrúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli