Var að horfa á Oprha .... þar var mjög athyglisverður þáttur um heilsu. Þar var talað um fitu á maganum (svo kallaða þarmanetju) sem er stórhættuleg. Viðmælendur Oprhu voru tveir læknar, sem gerði þennan þátt trúverðungan. Þeir sögðu þarmanetjuna jafn hættulega og krabbamein. Ég ákv. að kynna mér þessa doksa betur og fann alveg frábæra heimasíðu http://www.realage.com/doctorcenter/intro.aspx þar sem þeir eru að kynna bókina sína, YOU: on a diet.
Ég held að maður hugsi alltof lítið um mataræði og heilsu.... maður er alltaf að horfa á ytra útlitið!! komast í gömlu gallabuxurnar!!
þriðjudagur, 6. mars 2007
Flandur
Við mæðgur komum suður á morgun! ...og verðum í heila viku :)
Ég fer í augnbotna myndatöku á fimmtudag og síðan verð ég á námskeiði mánudag og þriðjudag í næstu viku á vegum vinnunar.
Ég var að taka saman ferðalög mánaðarins hjá mér..... um síðustu helgi var ég á Akureyri, er að fara suður á morgun, helgina 17. er árshátíð hjá vinnunni í Rvík. og helgina þar á eftir önnur ferð suður í fermingu..... sem sagt... ekki ein heil helgi heima hjá mér þennan mánuðinn !!
Geri aðrir betur :)

föstudagur, 23. febrúar 2007
Bjartsýni
Bjartsýni er plástur á svo margt. Ég hef komist að því að bjartsýni hjálpar þegar manni sýnist allt vera að fara til fjandans. Það vill svo til að ég hef þurft á mikilli bjartsýni að halda síðustu vikur.....augun mín hafa verið að bregðast mér en ég hef leikið Pollý Önnu leik á hverjum degi til að halda sönsum og það hefur skilað sér svo um munar. Ég er líka svo heppin að eiga góða vini og fjölskyldu sem eru óspör á hrós, huggun, hvatningu og stuðning. Í dag fékk ég stuðning úr annari átt sem gerir mig enn bjartsýnni..... námsráðgjafinn í HA og kennararnir mínir eru allir tilbúnir að aðstoða mig og sýndu mér mikinn skilning í þessari krísu minni. Það að hafa allan þennan stuðning og hvatningu er mér mikils virði......
Svo TAKK ALLIR :)
Svo TAKK ALLIR :)
föstudagur, 16. febrúar 2007
Betur sjá augu en auga !
Var þetta ekki einhvern vegin svona? Já, augun eru heldur betur búin að vera að trufla mig þessa dagana. Þetta er orðið svo slæmt að ég er farin að ganga með derhúfu í vinnunni (sem er nótabene ekki mjög traustvekjandi fyrir kúnnana .... að sjá þjónusturáðgjafann sinn með derhúfu á hausnum). Flúorljósin eru svo björt og stingast í augun á mér og þegar ég var að kvarta benti vinnufélagi minn mér á að nota derhúfu (í gríni).... og það svín-virkaði!! en ég er nú samt búin að tala við augn-doksa um það að fá dekkri gleraugu til að vinna með .... hehe, hvað ætli kúnnin segji þá .... þjónusturáðgjafinn kominn með sólgleraugu í vinnunni!!!
fimmtudagur, 8. febrúar 2007
Undirmeðvitund
Ég er talin þrjóskari en andskotinn og viðurkenni það fúslega að það er mjög erfitt að snúa mér þegar ég hef bitið eitthvað í mig. Flestir sem reyna að sannfæra mig um eitthvað annað en það sem ég held fram (nema þeir sem hafa skothelda sönnun fyrir því) enda oftast á því að hrista hausinn og labba í burtu.
Það er aðeins "ein" sem mér reynist rosalega erfitt að rökræða við....og oftast tapa ég þeim rökræðum. Það er þessi bölvaða undirmeðvitund sem er svo ótrúlega sannfærandi.... þegar hún segir ,,hva, eitt lítið súkkulaði stk. eyðileggur ekkert átakið þitt" eða ,,hvernig væri nú að slappa svolítið af og fá sér einn bjór og sígó" eða ,,æj, förum í göngutúr á morgun". Það fer svakaleg orka í þessa baráttu. Þá er bara að setja upp boxhanskana og berjast.

mánudagur, 5. febrúar 2007
Urrr....
Það er búið að vera mikill pirringur í gangi .... ég er í tölfræði-áfanga sem er svo illa kenndur að allir (miða við umræðuna á WebCT (töfuforrit fyrir skólann)) standa á gati !! það endaði með því að ákveðna konan ég fékk mig fullsadda og sendi kennaranum og umsjónarmanni tölvupóst og húðskammaði þá !!!!!!! já ég lét þá heyra það (mjög kurteis samt). Í morgun beið mín tölvupóstur frá umsjónarmanninum (ekki heyrt múkk frá kennaranum, efast reyndar um að hann kunni á tölvupóst) þar sem hann biður mig um að hringja í sig til að ath. hvernig bæta megi kennsluna ??!!! á nú eggið að fara kenna hænunni ?!! ég sem er búin með einungis eina önn í fjarnámi ?!! ekki það að ég hafi ekki skoðanir á þessari kennslu (og mun sko sannarlega láta þær í ljós), hélt bara að þegar boðið væri upp á fjarnám væri búið að þjálfa kennarana í þesskonar kennslu ??!!!
föstudagur, 2. febrúar 2007
Bindindi
Ætli þetta orð sé nýyrði ? ætli fyrir svona 100 árum hafi fólk farið í bindindi ?
Ég hef alltaf verið að hugsa um bindindi ..... hætta þessu og hætta hinu....en auðvitað hætti ég aldrei neinu !! Þá ákvað ég að prufa dálítið annað.....plata sjálfan mig og .....byrja á einhverju :) ...og, hehe... ég held bara að það hafi tekist !! ég er byrjuð að hreyfa mig meira, borða hollara og anda að mér hreinu lofti alla sólahringinn :) þetta er ég búin að gera í rétt tæpar tvær vikur og gengur svona þrusu vel ! það fyndnasta við þetta allt, er að auðveldast er að byrja að anda að sér heina loftinu.
Ég skora á alla að hætta að hætta og fara frekar að byrja á einhverju.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)