föstudagur, 23. mars 2007

Heilsa

Var að horfa á Oprha .... þar var mjög athyglisverður þáttur um heilsu. Þar var talað um fitu á maganum (svo kallaða þarmanetju) sem er stórhættuleg. Viðmælendur Oprhu voru tveir læknar, sem gerði þennan þátt trúverðungan. Þeir sögðu þarmanetjuna jafn hættulega og krabbamein. Ég ákv. að kynna mér þessa doksa betur og fann alveg frábæra heimasíðu http://www.realage.com/doctorcenter/intro.aspx þar sem þeir eru að kynna bókina sína, YOU: on a diet.
Ég held að maður hugsi alltof lítið um mataræði og heilsu.... maður er alltaf að horfa á ytra útlitið!! komast í gömlu gallabuxurnar!!

þriðjudagur, 6. mars 2007

Flandur

Við mæðgur komum suður á morgun! ...og verðum í heila viku :)
Ég fer í augnbotna myndatöku á fimmtudag og síðan verð ég á námskeiði mánudag og þriðjudag í næstu viku á vegum vinnunar.
Ég var að taka saman ferðalög mánaðarins hjá mér..... um síðustu helgi var ég á Akureyri, er að fara suður á morgun, helgina 17. er árshátíð hjá vinnunni í Rvík. og helgina þar á eftir önnur ferð suður í fermingu..... sem sagt... ekki ein heil helgi heima hjá mér þennan mánuðinn !!
Geri aðrir betur :)