þriðjudagur, 6. mars 2007

Flandur

Við mæðgur komum suður á morgun! ...og verðum í heila viku :)
Ég fer í augnbotna myndatöku á fimmtudag og síðan verð ég á námskeiði mánudag og þriðjudag í næstu viku á vegum vinnunar.
Ég var að taka saman ferðalög mánaðarins hjá mér..... um síðustu helgi var ég á Akureyri, er að fara suður á morgun, helgina 17. er árshátíð hjá vinnunni í Rvík. og helgina þar á eftir önnur ferð suður í fermingu..... sem sagt... ekki ein heil helgi heima hjá mér þennan mánuðinn !!
Geri aðrir betur :)

3 ummæli:

Hulda sagði...

Sem sagt bara koma og flytja hérna til okkar í Reykjavíkina, er það ekki greinilega bara málið:)

kv hulda heidars

Nafnlaus sagði...

híhí.. ég segi það sama og Hulda, það er alveg spurning um að það borgi sig bara að flytja til okkar þar sem þið eruð hvort eð er alltaf hérna ;-)

kv. Íris

Þorkatla sagði...

Það var fúlt að hafa ekki vitað af þér í heila viku, ég hefði getað skotist kannski til þín.
Hlakka til að hitta þig næst :-)