mánudagur, 5. febrúar 2007
Urrr....
Það er búið að vera mikill pirringur í gangi .... ég er í tölfræði-áfanga sem er svo illa kenndur að allir (miða við umræðuna á WebCT (töfuforrit fyrir skólann)) standa á gati !! það endaði með því að ákveðna konan ég fékk mig fullsadda og sendi kennaranum og umsjónarmanni tölvupóst og húðskammaði þá !!!!!!! já ég lét þá heyra það (mjög kurteis samt). Í morgun beið mín tölvupóstur frá umsjónarmanninum (ekki heyrt múkk frá kennaranum, efast reyndar um að hann kunni á tölvupóst) þar sem hann biður mig um að hringja í sig til að ath. hvernig bæta megi kennsluna ??!!! á nú eggið að fara kenna hænunni ?!! ég sem er búin með einungis eina önn í fjarnámi ?!! ekki það að ég hafi ekki skoðanir á þessari kennslu (og mun sko sannarlega láta þær í ljós), hélt bara að þegar boðið væri upp á fjarnám væri búið að þjálfa kennarana í þesskonar kennslu ??!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Vandamálið við tölvukerfi í háskólunum er að það er í "boði" fyrir kennara að læra á það, en ekki skylda :-|
Skylda ætti alla þá sem kenna í fjarnámi til að læra vel á þann búnað sem ætlast er til að notaður sé - tala nú ekki um að umsjónamenn fjarnámsins ættu að vera skyldugir til að passa uppá að gæði kennslunnar sé í lagi..
Láttu þá bara heyra það :-)
knús, Íris
p.s. hlakka ógurlega til að fá ykkur til mín á helginni
Skrifa ummæli