þriðjudagur, 30. janúar 2007
Fjölskyldufyrirtækið ?!!
Ég hef oft velt því fyrir mér að byrja að reka heimilishaldið eins og hvert annað fyrirtæki. Hef ég þá oftast verið að spegúlera í fjármálunum (I wonder). En hvað með allt hitt.... það eru starfsmenn í fyrirtækjum og þeir hafa hvert sitt hlutverk, er það ekki líka svo í venjulegri fjölskyldu ? Fyrirtæki eiga eignir sem halda þarf við og til þess er eyrnamerktur peningur á ári hverju. Gera venjuleg heimili það ? Bókhaldið hjá fyrirtækjum fer eftir ströngum reglum, en hvað með heimilisbókhaldið ?? Þetta er spurning um að reka heimilið alltaf í tapi ... eða að fara gera það út eins og hlutafélag, þar sem allir fjölskyldumeðlimir eru hluthafar og starfsmenn sem vilja vinna saman að því að reka heimilið þannig að af því skapist hagnaður !!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já, ég hef líka verið að velta þessu fyrir mér.. afhverju rekum við ekki heimilin okkar eins og við myndum reka fyrirtæki ef við ættum það.. Þá kannski kemst eitthvað í verk - hmm..
kv. Íris
Skrifa ummæli