Halló .....
þá er að leggja í´ann ..... þetta verður nú bara til prufu, það kemur í ljós hvort ég nenni þessu :)
Hef mikið spáð hvernig blogg þetta verður og hallast á að það verði svona allt múligt-blogg. Fréttir af mér og mínum, ausið úr skálum gleði, sorgar, skemmtilegheits, pirrings o.s.frv. að ógleymdu veðrinu ;)
Mín er búin að ákveða að leggjast í heilsurækt á þessu ári. Er að stúdera danska-kúrinn, hætti að reykja á sunnudag og síðan verður græjunni minni misþyrmt á hverjum degi (Cross Trainer). Ég hef aldrei verið eins einbeitt og nú í ,,heilsubætun" og er sannfærð um að ég get þetta !!!
Búin að skrá mig í þrjá kúrsa núna eftir áramót (hjá HA), verð í Rekstrarhagfræði, Tölfræði og Ársreikningi.... náði að kaupa allar skruddurnar notaðar og borgaði ca. 10þús fyrir allar, spara líklega 10þús ..hehe.. vel sloppið !!
Hlakka til að sjá hvernig þessu bloggi mínu verður tekið :)
miðvikudagur, 17. janúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þá er að byrja að lesa bloggið þitt:)
Gangi þér vel með átakið, ég er alltað að fara að byrja.
Kv,Gummi (brósi)
Við Gummi vorum hérna í bókhlöðunni að læra.. dugleg systkyn í skóla :-) Vildi að þú værir hérna í bænum með okkur!! Hann benti mér á bloggið - hmm.. þú varst ekki að segja mér frá því áðan þegar ég talaði við þig ;-)
Allavega, gangi þér rosalega vel í hættireykjacrosstranerpúlinudanskakúrnumháskólalærdómnum og öllu því tilheyrandi :-) líst rosalega vel á þetta hjá þér..
Passa sig bara að ætla sér ekki allt í einu, taka þetta í áföngum og segja, "ég get þetta" - Hugurinn ber mann alla leið !!
Vildi að bækurnar mínar væru svona ódýrar - gat ekki keypt neina bók notaða - er komin í c.a. 35 þús. og á enn eftir að kaupa nokkrar :´-(
knúúús, Íris (systa)
Skrifa ummæli