sunnudagur, 28. janúar 2007

Sé ekki "rassgat"

Ég sé, en sé samt ekki !! hvernig í andsk. fer maður að því að útskýra þetta fyrir öðrum ? ég gefst hreinlega upp !!! Það fer rosalega í pirrurnar á mér þegar ég er að reyna að útskýra fyrir fólki að það sé eitthvað að mér í augunum.....hvernig getur eitthvað verið að mér þegar ég get gert alla hluti ?? það vill bara svo til að ég get gert allt sem ég vil ...EN ÞAÐ TEKUR BARA MIKLU MEIRI ORKU FRÁ MÉR ...en það gerir hjá heilbrigðu fólki !!!
Augnun mín eru í einhverju flippi þessa dagana, reyndar búin að vera í rugli í rúma viku :( En ljósi punkturinn í þessu er nú samt sá að yfirleitt gengur þetta yfir og skemmir ekkert útfrá sér (vonandi). Þá er bara að bíða.... en á meðan bíða líka lexíurnar og það er ekki gott. Ég er komin svo á eftir í skólanum að ég veit hreinlega ekki hvað ég á að gera.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku dúllan mín - nú vildi ég vera hjá þér og gefa þér STÓRT knús. Þú gerir ekki meira en þú getur.. Vonum að þetta gangi fljótt yfir í þetta skiptið..

kv. Íris