Jæja þá er þessi vinnuvika loks á enda.... ég vann að vísu bara tvo daga :) en var heima hjá veikri skvísu fyrripart viku, hún segist hafa verið með strumpakokka :)
Það er þorrablót á morgun og það á að taka á því.... síðasta fylliríð í einhvern tíma, það því víst lítið að ætla að hætta að reykja nema sleppa búsinu !! Ætli það verði ekki lítið dansað annað kvöld... pabbi skakkur eftir útafakstur og ég eftir að hafa tekið nokkur dansspor hér fyrir utan heimilið mitt (á rassinum), en kanski verður maður orðinn vel smurður af gin-í-greip að maður geti tekið nokkra snúninga með pabba.
Ég verð að játa á mig glæp !!! ég geymdi bóndadeginum :( enginn morgunmatur í rúmið né neitt xxx !! en ég held ég sleppi samt ... því ég er búin að demba tveimur kjúllum í ofninn fyrir kallana mína :) sem nótabene þurfa athygli mína NÚNA......
Túrílú
föstudagur, 19. janúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
hmmmmm.. bóndadagurinn - er hann búinn?? ehhh..
kv. Íris
Skrifa ummæli