föstudagur, 16. febrúar 2007
Betur sjá augu en auga !
Var þetta ekki einhvern vegin svona? Já, augun eru heldur betur búin að vera að trufla mig þessa dagana. Þetta er orðið svo slæmt að ég er farin að ganga með derhúfu í vinnunni (sem er nótabene ekki mjög traustvekjandi fyrir kúnnana .... að sjá þjónusturáðgjafann sinn með derhúfu á hausnum). Flúorljósin eru svo björt og stingast í augun á mér og þegar ég var að kvarta benti vinnufélagi minn mér á að nota derhúfu (í gríni).... og það svín-virkaði!! en ég er nú samt búin að tala við augn-doksa um það að fá dekkri gleraugu til að vinna með .... hehe, hvað ætli kúnnin segji þá .... þjónusturáðgjafinn kominn með sólgleraugu í vinnunni!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
fyrst alþingismaður getur verið með dökk gleraugu ig virkað traustvekjandi þá getur þjónustufulltrúi í banka vel verið það - ekki satta :) Þú verður örugglega BARA kúl með þau!!
knús, Íris
Takk dúllan mín :)
Mér finnst það bara töff.
Skrifa ummæli